Nú 14.mars síðastliðinn þá fæddust loksins Siberian Husky hvolpar á Gunnlaugsstöðum, en það er ræktunin fyrir austan sem við erum að fá hvolp frá. Við erum búin að fara einu sinni í heimsókn eftir að þeir komu og þeir eru vægast sagt geggjaðir. Við erum að fá rakka og nú er verið að pæla hvort hann eigi að vera svartur eða grár. Við vorum búin að plana gráann en ég veit ekki alveg af hverju við fórum að flækja þetta svona. Þeir eru allir flottir , en að sjálfsögðu velur maður með geðslagið í huga. Við veljum þegar hvolparnir eru um 4 vikna og svo fáum við hann til okkar 8 vikna. Það er óhætt að segja að allir sú spenntir hérna heima enda búið að bíða lengi. Ég ætla að reyna að setja inn myndir af þeim í kvöld og blogga vonandi meira fljótlega er enn að vinna í síðunni og græja hana.
Þetta er Mjöll móðirin með hvolpana sína:)
P.s endilega kvitta fyrir komuna
