Pétur Skarp

Þar sem hlutirnir gerast

Browsing Posts in Óflokkað

Nýjar myndir

No comments

Setti inn nokkrar myndir bæði frá júlí og svo sérmöppu fyrir Icehusky mótið sem við fórum á um daginn. Kem með aðra færslu síðar með fréttum :) Klikkið á myndina til að komast inní restina af myndunum hjá mér.

IMG_4739

Hef ekki verið sá duglegasti að setja inn undanfarið en ég bretti upp ermarnar í gær og setti inn helling af myndum.

Það er það að frétta af okkur að það eru aðeins 2 vikur í stóra daginn og nóg að gera. Allt gengur nú vel og ekkert mikið stress ennþá allavega:)

Týr stækkar og stækkar og er að verða nokkuð hlýðinn en það er svo mikil vinna eftir sér maður :) en bara gaman af því.

Ég fór í þjóðleikhúsið um daginn að lýsa Vínland, stykkið sem ég hannaði lýsingu í hérna í Freyvangi. Það var rosalega gaman og má segja að erfitt verði að toppa þetta :) nema að fá bara vinnu þarna. Þarna var maður kominn í pro umhverfi og allt til alls til að setja upp flotta lýsingu :) og held ég að það hafi tekist ágætlega hérna fyrir neðan eru tvær myndir af sviðinu :)

DSC00124

DSC00126

Svo hef ég verið að taka aðeins myndir af mínu fólki að æfa mig aðeins fyrir brúðkaupið hjá Bjarma og svona leika mér og eru fullt af myndum inná myndasíðunni. Klikkið á myndina til að komast þangað inn :)

IMG_4411

En endilega commentið eða skráið í gestabókina hér til hliðar :) eigið góðan dag.

Týr stendur sig einsog hetja í að gera æfingar og finnst það mjög gaman. Hann er ótrúlega hlýðinn og lærir fljótt miðað við ungan aldur :) Við tókum smá videó af honum til að geta grobbað okkur aðeins :) Annað að frétta að við feðgar erum búnir að vera einir heima nokkuð lengi núna og hefur það gengið ágætlega. Týr búinn að vera góður í búrinu á meðan ég hef verið að vinna, svo hef ég fengið Diddu til að aðstoða mig með hann. Það er of langt fyrir hann núna að vera alveg allan daginn einn. En hann er ótrúlega þægur í búrinu, kemur annarslagið eitt gelt eða smá kvörtun en annars heyrist ekki í honum. Týr hefur aldrei (sjö níu þrettán) kúkað eða pissað á gólfið inni, náðum að venja hann strax við að gera stykkin sín úti:) ótrúlega duglegur og skemmtilegur karakter.

Hér er videóið:)

Fórum aðeins útí garð í dag og gerðum smá tilraunir í myndatöku. Ekki vantar módelin á þessu heimili, ef stelpurnar eru ekki í stuði þá má alltaf plata Tý með sér út :)

Við erum barnlaus þessa daga því miður :( en Linda fékk að fara með ömmu sinni og afa til Reykjavíkur í heimsókn. Henni leiðist sko ekki þar, alltaf mikið fjör og sögurnar hjá Afa Adda slá allt út á kvöldin :)

En endilega kíkkið á myndirnar þær má sjá allar (réttara sagt þær sem ég mátti setja inn) með því að klikka hérna.

Eitt enn en ég setti inn á síðuna gestabók til prufu þannig ef fólk vill frekar kvitta þar þá er það velkomið. Hana má sjá hérna .

Var að setja inn myndir af smá leikdegi á Gásum, en við fórum með Neró og Tý á Gásir í smá hreyfingu. Sjá mundirnar hér.

Ef þið viljið kvitta á síðuna þá endilega gera það bara undir færslunum hérna á forsíðunni. Ég skal reyna að muna að gera færslu í hvert sinn sem ég set inn myndir.:)

Það er óhætt að segja að það hafi verið nóg að gera um helgina. Sæþór og Alli komu norður til að halda hundanámskeið, Anna frænka var að útskrifast og hennar fjölskylda kom öll norður og svo var gamall æskuvinur að gifta sig. Þannig til að ná að hitta alla og vera á námskeiði með alla helgina þurfti gott skipulag :) en það hafðist og þetta var rosalega gaman. Týr reyndar var ekki með á námskeiðinu því hann á eftir að fá eina sprautu hjá lækninum áður en hann má hitta aðra hunda. En við hjúin og Linda lærðum helling og erum strax byrjuð að nota æfingarnar sem Alli var að kenna á Tý. Og Týr er rosa duglegur, svo góðu í bílnum og síðasta nótt var frábær hjá honum hann svaf til hálf sjö sem er bara útsof hjá honum :)

En ég er búinn að setja fullt af myndum bæði af Tý hérna heima fyrstu dagana og svo af námskeiðinu sem var um helgina. Klikka hér :)

img_3771img_3762img_3704

Fórum með Týr okkar í sinn fyrsta hitting með öðrum Husky hundum. Það gekk rosa vel og allir léku sér saman. Múla-Dakoda kom með en hún er nýkomin til Önnu sinnar frá Gunnlaugsstöðum. Týr okkar var vel spenntur og þurfti reyndar að bremsa hann aðeins af í öllum látunum. Hérna fyrir neðan eru nokkrar myndir úr hittingnum en fleiri myndir má sjá á mynda síðunni hér.

Krúttin mín

Og stökkva

Ég og Linda vorum að leika okkur í Kjarnaskógi og ég var að reyna að ná myndum. Svo komu náttúrulega Píla og Sæþór frændi með. Nú styttist rosalega í Týr og við getum ekki beðið. Klara á fullu í prófum maður nær sambandi við hana í kringum kvöldmatinn ekki mikið meira en það.

Hérna eru svona skástu myndirnar:

linda-a-icehusky Linda mín gullfallega.

linda-a-icehusky1

linda-a-icehusky2

pila-a-icehusky

Læt þetta næga í bili en það eru fleiri myndir í betri gæðum inná flickr síðunni minni. Tengillin á hana er hér til hliðar.

Í gær héldum við austur á Gunnlaugsstaði til að velja loksins Husky hvolpinn. Sæþór frændi og Dagbjört komu með til halds og traust. Við ákváðum að taka daginn snemma og vera tímanlega sem reyndar kom á daginn að var mjög gott.  Einsog alltaf þá fengum við frábærar móttökur hjá þeim Hjördísi og Steina, alveg yndislegt fólk þar á ferð.

Eftir kaffihlaðborð hjá þeim á Gunnlaugsstöðum þá var farið í að taka hvern hvolp í smá próf, það var mjög gaman að sjá hvernig þeir eru mismunandi í hegðun þegar þeir koma í ókunnugt umhverfi. Allir hvolparnir voru mjög jafnir greinilega og valið var því frekar strembið. En eftir miklar pælingar og skoðanir þá komumst við loks að niðurstöðu. Ákveðið var grár rakki sem hafði heillað okkur alveg (reyndar hinir líka allir). Við erum bæði rosalega sátt við þessa ákvörðun og getum ekki beðið að fá hann í hendurnar.

Svo áður en við fórum heim þá voru teknar nokkrar myndir og svo sýndi hún Hjördís okkur staðinn í Hallormsstaðarskógi þar sem planið er að halda Icehusky mótið í sumar. Frábær staðsetning og nú er bara að bíða eftir þessu sumri sem stefnir í það að vera það besta hingað til hjá okkur fjölskyldunni.

hvolpar-april-2009-594Múla Týr brosandi sæll

Kanski maður dritri nokkrum línum. Af okkur er lítið að frétta annað en að konan mín lítur ekki uppúr bókum, er að reyna að klára verkefnin áður en hún fer suður að brasast fyrir brúðkaupið þessi elska. Hjá mér hefur lítið gerst undanfarið nema ég afrekaði það að kaupa mér kort í ræktina og er planið að vera orðinn án bjórbumbu fyrir brúðkaupið sem er í júlí. Reyndar er ég að fara á morgun í hina árlegu árshátíð dalvíkurskóla að hengja upp ljós, reyndar er það eitt það einfaldasta verk sem ég sinni, en gaman að taka þátt í þessu. Svo reyndar eru stórar fréttir frá Selfossi en Bjarmi bróðir og Helga eru að fara að gifta sig í sumar líka, þannig þetta verður rosa sumar hjá okkur öllum í fjölskyldunni. Svo er verið að tala um kreppu, þegar allt er fullt af hamingju í kringum manni þá sér maður það ekki. Þau báðu mig um að taka ljósmyndir í brúðkaupinu þannig ég er kominn með nettann kvíða fyrir því. Vill ekki vera bróðirinn sem klúðraði myndunum á þessum degi. Ætli maður verði ekki að fara að æfa sig og mæta bara í messur og svona (líklegt). Linda okkar er að standa sig einsog hetja einsog alltaf, komin í talþjálfun hjá Valdísi og gengur vel og reyndar búin að fara nokkrum sinnum til tannsa síðustu mánuði. Hún var ótrúlega dugleg og þurfti ekki nema nokkra skammta af glaðlofti til að komast í gegnum það, reyndar skil ég hana vel þetta er nú ekki það skemmtilegasta í heimi. Svo þegar foreldrarnir sjá reikninginn þá kallar það á ákveðna innlögn líka. Hvaða bull er þetta orðið á verðum þarna hjá þessu liði. Finnst ekkert skrítið að tannskemmdir hjá börnum færist í aukana því fólk kanski einfaldlega getur ekki borgað þetta. En nóg um það maður bara borgar það er ekkert annað í boði.

Hvolpurinn okkar er rúmlega 2 vikna og dafna þeir allir vel. Nú er mikið spáð í litavalinu og er það hinn mest hausverkur. Þeir eru allir ótrúlega flottir og erfitt að gera upp á milli þeirra. Við förum núna 14.apríl að velja og erum við með fínar leiðbeiningar frá Alla frænda sem er mjög vel að sér í hundaheiminum, hvernig á að meta hvolpana. Þetta hvolpatest einsog hann kallar það mun eðlilega ráða miklu í valinu. Við vonum að Sæþór frændi sem er bróðir Alla komi með og aðstoði við þetta. Nú eru innan við 6 vikur þangað til litla dýrið kemur til okkar.Ég setti inn myndir af hvolpunum og eru þær inná myndasíðunni hérna.

Í vinnuni er allt fínt að frétta, frekar rólegt þessa dagana enda alveg að koma mánaðarmót og fólk yfirleitt rólegt á þessum tíma. En ég hef fengið það verkefni að fara með ferðaverslun í heimsóknir í fyrirtæki og kynna þjónustur Símans. Það er mjög spennandi og gaman að breyta aðeins til og fá meiri verkefni.  Gesturinn alveg að fara að byrja aftur eftir 2 mánaða frí með syninum og fjölskyldu. Ef hann væri ekki UTD maður þá væri svosem alltí lagi að fá hann aftur :) segi svona.

Talandi um UTD þá fékk ég inneignarnótu í Pedrómyndum í afmælisgjöf, og Helgi Steinar félagi afhenti mér þetta skelfilega inneignarkort. Neinei takk kærlega fyrir Helgi minn þetta er geggjað :)

ver4d2dtmpLæt þetta nægja í bili en þess má geta að Helgi er innst inni Liverpool maður einsog allir eðlilegir menn:)

Powered by WordPress Web Design by SRS Solutions © 2012 Pétur Skarp Design by SRS Solutions