Pétur Skarp

Þar sem hlutirnir gerast

Browsing Posts published by Pétur

Nú 14.mars síðastliðinn þá fæddust loksins Siberian Husky hvolpar á Gunnlaugsstöðum, en það er ræktunin fyrir austan sem við erum að fá hvolp frá. Við erum búin að fara einu sinni í heimsókn eftir að þeir komu og þeir eru vægast sagt geggjaðir. Við erum að fá rakka og nú er verið að pæla hvort hann eigi að vera svartur eða grár. Við vorum búin að plana gráann en ég veit ekki alveg af hverju við fórum að flækja þetta svona. Þeir eru allir flottir , en að sjálfsögðu velur maður með geðslagið í huga. Við veljum þegar hvolparnir eru um 4 vikna og svo fáum við hann til okkar 8 vikna. Það er óhætt að segja að allir sú spenntir hérna heima enda búið að bíða lengi. Ég ætla að reyna að setja inn myndir af þeim í kvöld og blogga vonandi meira fljótlega er enn að vinna í síðunni og græja hana.

mjollÞetta er Mjöll móðirin með hvolpana sína:)

P.s endilega kvitta fyrir komuna :)

Jæja þá er törninni hjá mér lokið og aðeins búið að róast hér á bæ. Konan er að vísu aldrei heima en svona er það nú bara. Nú er ég búinn að hanna lýsingar í tvö leikrit á síðustu 5 vikum, fyrst var ég í Freyvangi þar sem sett var upp söngleikurinn Vínland, svo lýsti og Ingvar Björns hjá þeim í Hörgárdal en þau settu upp farsann Stundum og stundum ekki. Gaman að þeim báðum, að vísu hefði maður vilja gera Vínland öðruvísi svona þegar maður hugsar um það eftirá. En annars mjög sáttur við lýsinguna þar miðað við tæki og annað sem er í boði þarna. Allavega mæli vel með þessari sýningu og reyndar þessari í Hörgárdal líka.

vinland

Nú tekur við bara rólegheit og svo á ég afmæli eftir rúma viku. Harðir pakkar vel þegnir:)

Svo á hún mamma mín 60 ára afmæli í dag og það stefnir í svaka partý um helgina hjá henni gaman að því. Svo ætla ég að reyna að dunda í þessari síðu aðeins þannig þetta verði komið og gott lag fljótlega. Enginn sem veit af þessu núna, hef ekki viljað auglýsa þetta neitt þar sem síðan er ekki nærri því tilbúin.

Svo er bara rúm vika í að Huskyinn okkar fæðist og það er mikil tilhlökkun á heimilinu fyrir því. Enda gamall draumur að verða að veruleika. En meira af því seinna. Þangað til næst hafið það gott :)

Powered by WordPress Web Design by SRS Solutions © 2012 Pétur Skarp Design by SRS Solutions