Það má segja að áhugamálin hjá mér séu fá en skemmtileg. Ég hef unnið mikið við ljósavinnu og ljósahönnun bæði í atvinnu og áhugaleikhúsum. Mér finnst sú vinna sem fer fram í leikhúsum skemmtileg og gefandi. Ég er nýbúinn að eignast góða myndavél og finnst mjög gaman að eiga við þá tækni. Er nýbyrjaður í því. Það má segja að öll tækni heilli mín og finnst mér gaman að fikta, enda eru harðir pakkar ofarlega á óskalistanum hjá mér.

Svo er ég meðlimur í Björgunarsveitinni á Dalvík og hef verið í stjórn hennar í nokkur ár, og núna er ég starfandi varaformaður. Þetta starf er rosalega fjölbreytt og gefandi einnig, það að renna á sleða uppá fjall er alveg ómetanlegur tími sem maður hefur með sjálfum sér og stundum öðrum.