Fórum aðeins útí garð í dag og gerðum smá tilraunir í myndatöku. Ekki vantar módelin á þessu heimili, ef stelpurnar eru ekki í stuði þá má alltaf plata Tý með sér út
Við erum barnlaus þessa daga því miður
en Linda fékk að fara með ömmu sinni og afa til Reykjavíkur í heimsókn. Henni leiðist sko ekki þar, alltaf mikið fjör og sögurnar hjá Afa Adda slá allt út á kvöldin
En endilega kíkkið á myndirnar þær má sjá allar (réttara sagt þær sem ég mátti setja inn) með því að klikka hérna.
Eitt enn en ég setti inn á síðuna gestabók til prufu þannig ef fólk vill frekar kvitta þar þá er það velkomið. Hana má sjá hérna .
Comments
Leave a comment Trackback