Í gær héldum við austur á Gunnlaugsstaði til að velja loksins Husky hvolpinn. Sæþór frændi og Dagbjört komu með til halds og traust. Við ákváðum að taka daginn snemma og vera tímanlega sem reyndar kom á daginn að var mjög gott. Einsog alltaf þá fengum við frábærar móttökur hjá þeim Hjördísi og Steina, alveg yndislegt fólk þar á ferð.
Eftir kaffihlaðborð hjá þeim á Gunnlaugsstöðum þá var farið í að taka hvern hvolp í smá próf, það var mjög gaman að sjá hvernig þeir eru mismunandi í hegðun þegar þeir koma í ókunnugt umhverfi. Allir hvolparnir voru mjög jafnir greinilega og valið var því frekar strembið. En eftir miklar pælingar og skoðanir þá komumst við loks að niðurstöðu. Ákveðið var grár rakki sem hafði heillað okkur alveg (reyndar hinir líka allir). Við erum bæði rosalega sátt við þessa ákvörðun og getum ekki beðið að fá hann í hendurnar.
Svo áður en við fórum heim þá voru teknar nokkrar myndir og svo sýndi hún Hjördís okkur staðinn í Hallormsstaðarskógi þar sem planið er að halda Icehusky mótið í sumar. Frábær staðsetning og nú er bara að bíða eftir þessu sumri sem stefnir í það að vera það besta hingað til hjá okkur fjölskyldunni.
Múla Týr brosandi sæll
Comments
Leave a comment Trackback