Kanski maður dritri nokkrum línum. Af okkur er lítið að frétta annað en að konan mín lítur ekki uppúr bókum, er að reyna að klára verkefnin áður en hún fer suður að brasast fyrir brúðkaupið þessi elska. Hjá mér hefur lítið gerst undanfarið nema ég afrekaði það að kaupa mér kort í ræktina og er planið að vera orðinn án bjórbumbu fyrir brúðkaupið sem er í júlí. Reyndar er ég að fara á morgun í hina árlegu árshátíð dalvíkurskóla að hengja upp ljós, reyndar er það eitt það einfaldasta verk sem ég sinni, en gaman að taka þátt í þessu. Svo reyndar eru stórar fréttir frá Selfossi en Bjarmi bróðir og Helga eru að fara að gifta sig í sumar líka, þannig þetta verður rosa sumar hjá okkur öllum í fjölskyldunni. Svo er verið að tala um kreppu, þegar allt er fullt af hamingju í kringum manni þá sér maður það ekki. Þau báðu mig um að taka ljósmyndir í brúðkaupinu þannig ég er kominn með nettann kvíða fyrir því. Vill ekki vera bróðirinn sem klúðraði myndunum á þessum degi. Ætli maður verði ekki að fara að æfa sig og mæta bara í messur og svona (líklegt). Linda okkar er að standa sig einsog hetja einsog alltaf, komin í talþjálfun hjá Valdísi og gengur vel og reyndar búin að fara nokkrum sinnum til tannsa síðustu mánuði. Hún var ótrúlega dugleg og þurfti ekki nema nokkra skammta af glaðlofti til að komast í gegnum það, reyndar skil ég hana vel þetta er nú ekki það skemmtilegasta í heimi. Svo þegar foreldrarnir sjá reikninginn þá kallar það á ákveðna innlögn líka. Hvaða bull er þetta orðið á verðum þarna hjá þessu liði. Finnst ekkert skrítið að tannskemmdir hjá börnum færist í aukana því fólk kanski einfaldlega getur ekki borgað þetta. En nóg um það maður bara borgar það er ekkert annað í boði.
Hvolpurinn okkar er rúmlega 2 vikna og dafna þeir allir vel. Nú er mikið spáð í litavalinu og er það hinn mest hausverkur. Þeir eru allir ótrúlega flottir og erfitt að gera upp á milli þeirra. Við förum núna 14.apríl að velja og erum við með fínar leiðbeiningar frá Alla frænda sem er mjög vel að sér í hundaheiminum, hvernig á að meta hvolpana. Þetta hvolpatest einsog hann kallar það mun eðlilega ráða miklu í valinu. Við vonum að Sæþór frændi sem er bróðir Alla komi með og aðstoði við þetta. Nú eru innan við 6 vikur þangað til litla dýrið kemur til okkar.Ég setti inn myndir af hvolpunum og eru þær inná myndasíðunni hérna.
Í vinnuni er allt fínt að frétta, frekar rólegt þessa dagana enda alveg að koma mánaðarmót og fólk yfirleitt rólegt á þessum tíma. En ég hef fengið það verkefni að fara með ferðaverslun í heimsóknir í fyrirtæki og kynna þjónustur Símans. Það er mjög spennandi og gaman að breyta aðeins til og fá meiri verkefni. Gesturinn alveg að fara að byrja aftur eftir 2 mánaða frí með syninum og fjölskyldu. Ef hann væri ekki UTD maður þá væri svosem alltí lagi að fá hann aftur
segi svona.
Talandi um UTD þá fékk ég inneignarnótu í Pedrómyndum í afmælisgjöf, og Helgi Steinar félagi afhenti mér þetta skelfilega inneignarkort. Neinei takk kærlega fyrir Helgi minn þetta er geggjað
Læt þetta nægja í bili en þess má geta að Helgi er innst inni Liverpool maður einsog allir eðlilegir menn:)
Comments
Leave a comment Trackback