Jæja þá er törninni hjá mér lokið og aðeins búið að róast hér á bæ. Konan er að vísu aldrei heima en svona er það nú bara. Nú er ég búinn að hanna lýsingar í tvö leikrit á síðustu 5 vikum, fyrst var ég í Freyvangi þar sem sett var upp söngleikurinn Vínland, svo lýsti og Ingvar Björns hjá þeim í Hörgárdal en þau settu upp farsann Stundum og stundum ekki. Gaman að þeim báðum, að vísu hefði maður vilja gera Vínland öðruvísi svona þegar maður hugsar um það eftirá. En annars mjög sáttur við lýsinguna þar miðað við tæki og annað sem er í boði þarna. Allavega mæli vel með þessari sýningu og reyndar þessari í Hörgárdal líka.

Nú tekur við bara rólegheit og svo á ég afmæli eftir rúma viku. Harðir pakkar vel þegnir:)
Svo á hún mamma mín 60 ára afmæli í dag og það stefnir í svaka partý um helgina hjá henni gaman að því. Svo ætla ég að reyna að dunda í þessari síðu aðeins þannig þetta verði komið og gott lag fljótlega. Enginn sem veit af þessu núna, hef ekki viljað auglýsa þetta neitt þar sem síðan er ekki nærri því tilbúin.
Svo er bara rúm vika í að Huskyinn okkar fæðist og það er mikil tilhlökkun á heimilinu fyrir því. Enda gamall draumur að verða að veruleika. En meira af því seinna. Þangað til næst hafið það gott
Comments
Leave a comment Trackback