Pétur Skarp

Þar sem hlutirnir gerast

Jæja þá er bronsið búið og komst Týr í gegnum það með glæsibrag. Hann skoraði 144 stig og var stigahæstur í prófinu :) stigahæsti hundur ársins enn sem komið er þannig það er ekki hægt að kvarta undan því. En hér fyrir neðan er video af prófinu hans ef einhverjir hafa áhuga að sjá hvernig svona fer fram. En auðvitað erum við að rifna úr grobbi enda Týr með hæsta skor í prófinu af Husky og ekki margir sem hafa farið í gegnum prófið af þessari tegund :) en endilega muna eftir gestabókinni ef þið viljð skilja eftir kveðju. :)

Svo ein eftir prófið af okkur vinunum :)

Var að setja inn myndir frá hundasýningunni um helgina og er óhætt að segja að dýrið okkar hafi staðið sig með prýði. Hann var að keppa í fyrsta sinn í ungliðaflokk hann er víst ekki í hvolpaflokknum lengur. Og það kom því skemmtilega á óvart að hann vann sinn flokk með glæstum og fékk frábæra dóma, meistaraefni og allt bara mjög gott. Svo að auki fékk hann passa áfram eða semsagt dómaranum fannst hann eiga heima í opnum flokk seinna um daginn. Þar koma allir þeir sem dómarinn gaf passa úr öllum flokkum hjá rökkum, sem dæmi pabbi týs hann Berg var þarna og frændi Týs heimsspekingurinn Blanco. Þannig ekki gerði maður sér nú miklar vonir við að litli gaurinn mundi gera einhverjar gloríur þar, enda búinn að sýna sitt og fá einkunina Excellent sem var jú takmarkið mð ferðinni okkar :) En jújú Týr litli tók sig til og lenti í öðru sæti af öllum rökkum og Berg pabbi hans var í fyrsta sæti og Blanco stóri frændi í þriðja. Og ofan á allt saman fékk hann meistaraefni og vara alþjóðlegt meistarastig eða RES CACIB einsog það er á fræðimálinu :)

Ég var eiginlega alveg orðlaus með þetta og ég tala nú ekki um að Múla ræktun átti marga sigurvegara þennan daginn og allir stóðu sig rosa vel. Ég vil bara þakka Kollu og Þórdísi að hafa tekið hann að sér og sýnt hann fyrir okkur :) Myndir segja meira en 1000 orð sagði einhver vitringur þannig endilega klikkið á HÉR. Svo muna gestabókina :)

Hér er svo dómurinn hans:

Very Nice Male.
Ex.Prop. He is masculine
Beutiful head,very breed typical ex
G.earset + strong g.bite

Very harmonicoshly build + in G.condition.

Nice neck strong back
easy mover nice vear G.tail
G.coat quality.
Excellent

Nýtt útlit

1 comment

Setti loksins nýtt útlit og mun það eflaust gleðja marga :) en kanski hrella suma hehe

Nýjar myndir

No comments

Var að henda inn myndum síðan í desember:) búinn að vera rosa latur við þetta undanfarið en vonandi mun það fara skánandi.

IMG_8581

SNJÓR !!!

No comments

Ég og Týr að leika okkur í snjónum á Akureyri en hér hefur snjóað talsvert :)

Tvær myndir af honum á kafi í snjó:)

Leti Leti

No comments

Ég er búinn að vera svo rosalega latur við að setja hér inn og mynda undanfarið en ég ætla að bæta úr því núna og setja nokkrar myndir síðan í nóvember. Fórum meðal annars í myndatöku hjá mér sjálfum reyndar með smá aðstoð frá HSH :)

Allt gott að frétt annars hjá okkur,meðgangan gengur frábærlega og styttist þetta mjög hratt :) Týr er að skemmta okkur mikið á gelgjunni og er óhætt að segja að hún hafi staðið undir væntingum:) samt er ég að spá í að fara með hann í Bronz prófið í hlýðni í febrúar, því það verður haldið á Akureyri þá. en ég sé til hvernig hann verður stemmdur þá.

Linda mín blómstrar í leikskólanum og er allt frábært þar :) En ég ætla halda áfram þessari leti bara og ekki skrifa meira í bili en endilega kíkkið á myndirnar á myndasíðunni. Klikkið á myndina til að komast inn í nýjustu myndirnar mínar :)

1DS_8374

Það er helst að frétta af okkur að Klara fór í skoðun um daginn og gekk það rosa vel og allt er einsog í sögu. Við ákváðum að kíkja í pakkann og sjá kynið, og munum við mjög líklega eignast stelpu sem er skráð þá 22.febrúar 2010 :) Erum í skýjunum með það og er allt farið á fullt við undirbúning. Konan ætlar að græja þetta í tíma einsog vanalega þessi elska:)

Síðustu helgi þá fórum við suður með Tý á hundasýningu. Gekk það rosa vel og Týr stóð sig frábærlega.  Vann sinn flokk og var þar með besti rakkinn í hvolpahópnum en hafði ekki betur á móti bestu tíkinni sem er Gola frá Múlaræktun. Þau voru bæði frábær og dómarinn tók sér langan tíma í að ákveða sig. Svo fékk Týr alveg frábæra dóma og erum við mest ánægð með það. Hann er á góðri leið hjá okkur þó það sé nóg að gera við uppeldið :) greyið að fara byrja á gelgjunni og það á víst að vera mjög uppbyggilegur tími svo ekki sé meira sagt.En fyrir þá sem hafa áhuga þá er dómurinn sem hann fékk hér að neðan og svo eru fullt af nýjum myndum á myndasíðunni. Klikkið á myndina neðst til að komast þar inn.

Dómurinn:

G.type, ccb , nice masculin head,

g.skull+muscle ,

g eyes+earset ,

g.neck+back+chest ,

vg.angulations ,

g.bones + coat.

Very good movement +tail.

VERY PROMISING :)

IMG_7305

Gaman að þessu

No comments

Jæja nú er verið að undirbúa Tý fyrir næstu hundasýningu sem er í Reykjavík eftir viku, fórum fjölskyldan á Blómstursvelli og tókum smá æfingar og ég setti inn myndir frá því sem má sjá hér. Svo var hann á hlýðninámskeiði um síðustu helgi og stóð sig rosa vel. Við erum í skýjunum með hann hvað hann er duglegur og að hann sé að sýna okkur að þótt hann sé Husky þá er hann hlýðinn:) bara með aga og þjálfun er allt hægt þá réttum aga er vissara að segja :)

Linda blómstrar á nýjum leikskóla og er rosa hamingjusöm. Ætla ekki að segja hvað ég held að hafi verið í gangi á gamla staðnum. En það er rosa léttir að sjá hana svona ánægða.

Meðgangan gengur vel held ég allavega :) en heilsan er í lagi hjá Klöru og munum við freista þess að sjá kynið núna 5.október. Mikil spenna í gangi.

IMG_7109

Fórum með Tý á sína fyrstu hundasýningu nú um helgina og er óhætt að segja að hann hafi staðið sig vel. Fyrri daginn þá lenti hann í öðru sæti en Ívan hinn mikli var í því fyrsta:) Dómarnir sem hann fékk þá voru sam frábærir og vorum við í skýjunum með þá. Seinni daginn þá gerði kauði sig lítið fyrir og vann sinn flokk, keppti svo við bestu tíkina og vann það líka og var þar með orðinn besti hvolpur tegundar, frábær árangur hjá þeim. Svo keppti hann við allar hinar tegundir af hundum í úrslitum en komst ekki á pall þar. Hann stóð sig með mikilli prýði og fékk mikið hrós frá dómurum, bæði að hann væri vel byggður og með gott skap (sem við erum reyndar ánægðust með).

Ég er búinn að setja inn myndir á síðuna frá sýningunni þannig kíkkið í myndir bara og skoðið:)

Hér fyrir neðan má lesa dómana sem hann fékk þessa daga, sá fyrr á ensku þar sem það var erlendur dómari.

Dagur1:

Tall,masculine. Nice head,a bit heavy nose, good eyes+ears+neck. Normal back, good tail+angul. Massive bones and moves well. GOOD TEMP :)

Dagur2:

Fallegur,efnilegur hvolpur með laglegt höfuð – góð eyru og háls. Með sterklegann líkama, vel vinklaður. Góð bein m.v stærð og aldur og með góðann feld.

IMG_5984

Loksins

No comments

Vá hvað maður er búinn að vera latur við þetta undanfarið að setja hingað inn. En það er af nógu að taka, gifting,ólétta og margt fleira :)

Þetta sumar hefur verið einsog draumur, við giftum okkur í júlí og rétt áður en það brast á komumst við að því að Klara er ólétt og við því að fara að eiga okkar annað barn:) sem er frábært og algjört kraftaverk þar sem Klara er með erfiðann sjúkdóm hvað barneignir varðar þannig hér eru allir í skýjunum :)

Týr er orðinn rosa stór og gengur ágætlega með hann, við ætlum okkur með hann á námskeið í lok ágúst og svo er hann sýndur á hundasýningunni sem er þarnæstu helgi í Reykjavík. Þannig það er nóg að gera hér á bæ.

Ég og Týr fórum út eitt kvöldið í rosalegri kvöldsól og tókum nokkrar myndir, eða ég tók myndir og hann stillti sér upp :)

Læt nokkrar myndir fylgja og það eru fleiri ef þið klikkið á myndina.

IMG_5987

Powered by WordPress Web Design by SRS Solutions © 2012 Pétur Skarp Design by SRS Solutions